Meira var af rækju á miðunum norðanlands miðað við undanfarin fjögur ár en aftur á móti var minna af rækju austanlands, samkvæmt árlegri mælingu Hafrannsóknastofnunar á stofnstærð úthafsrækju.
Á aðalrækjuveiðisvæðinu, Norðurkantur – Grímsey, hefur vísitalan hækkað um 42% miðað við árið 2004. Rækjan var stór eða svipuð og árin 2006 og 2007.
Heildarvísitala stofnstærðar úthafsrrækju samkvæmt fyrstu útreikningum er svipuð í ár og í fyrra og er hún að nálgast vísitöluna árið 1999 sem var sú lakasta á tíunda áratugnum. Vísitalan var lægst árið 2004 en hækkaði lítillega til ársins 2007.
Mælingin fór fram á r/s Bjarna Sæmundssyni á tímabilinu 11.-24. júlí. Byrjað var fyrir Austurlandi og haldið vestur fyrir.
Meira fékkst af þorski í þessari rækjukönnun en árið 2007 eða svipað magn og árið 2006. Mest fékkst af þorski við Norðaustur- og Austurland en minna á miðunum vestan 18. gráðu vestur lengdar.
Helstu nýliðunarsvæði rækju eru austan 18. gráðu vestur lengdar og gæti því afrán þorsks á smárækju verið talsvert á þessu ári eins og verið hefur nokkur undanfarin ár eftir að þorski fjölgaði á úthafsrækjumiðunum.
Bráðabirgðaútreikningar sýna að nýliðun rækju er enn mjög slök ef miðað er við allt svæðið.
Hafrannsóknastofnunin hefur lagt til að leyfilegur hámarksafli úthafsrækju verði 7 þús. tonn fyrir fiskveiðiárið 2008/2009.
Verkefnistjóri var Unnur Skúladóttir, Guðmundur Skúli Bragason leiðangursstjóri. Skipstjóri var Ásmundur Sveinsson. Frá þessu er skýrt á vef Hafrannsóknastofnunar.