Auglýst hefur verið eftir tilboðum í leigu á togurum til stofnmælinga Hafrannsóknastofnunar.

Þetta kemur fram á vef stofnunarinnar. Leigan er sögð munu verða greidd með aflamarki.

„Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, hefur auglýst eftir tilboðum vegna tímabundinnar leigu á togurum til stofnmælinga að hausti og vori. Um er að ræða útboð vegna djúpslóðar í haustralli ásamt NA og S svæða í marsralli til eins árs (haustrall 2024, marsrall 2025) með möguleika á framlengingu til fleiri ára ef aðilar sannmælast um það. Gert er ráð fyrir fjórum vikum í október (haustrall) og þrem vikum frá lokum febrúar fram í mars (marsrall),“ segir á vef Hafrannsóknastofnunar.

Niðurstöður úr verkefnunum eru sagðar mikilvægar við mat á stofnstærð botnfiska og árlega aflaráðgjöf. Haustrall hafi farið fram frá árinu 1996 og teknar séu tæplega 400 stöðvar umhverfis landið. Þar af eru 179 stöðvar teknar á djúpslóð. Marsrall hafi farið fram ár hvert frá 1985 og séu teknar hátt í 600 stöðvar hringinn í kringum landið. Þar af séu tæplega 155 stöðvar teknar á hvoru þeirra svæða sem nú séu boðin út.