Seint á sunnudagskvöld óskaði línuveiðiskip sem var á veiðum út af Norðfjarðarhorni eftir aðstoð vegna bilunar í skrúfubúnaði. Þetta kemur fram í tilkynninngu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

„Áhöfn björgunarskipsins Hafbjargar var kölluð út um hálf eitt og hélt Hafbjörg úr höfn um eitt leitið. Þegar Hafbjörgin var komin að skipinu var farið í að koma taug á milli og klukkans þrjú í nótt lagði Hafbjörg af stað til lands með skipið í togi. Ferðin hefur gengið nokkuð vel og eru skipin nú komin inn á Norðfjörð og eiga stutt að bryggju í Neskaupstað,“ segir í tilkynningunni.

Valdimar GK 195. Mynd/Jón Steinar Sæmundsson
Valdimar GK 195. Mynd/Jón Steinar Sæmundsson

Ekki kemur fram í tilkynningunni um hvaða línusveiðiskip sé að ræða en samkvæmt Marinetraffic er það Valdimar GK 195.