Beitir NK kom með tæplega 1.100 tonn af Íslandssíld til Neskaupstaðar í morgun og er veiðum á Íslandssíld þar með lokið hjá Síldarvinnsluskipunum í ár.
Þetta kemur fram í frétt Síldarvinnslunnar.
Sturla Þórðarson skipstjóri á Beiti segir þar að veður hefði truflað veiðar verulega í túrnum.
„Þegar við komum vestur lágum við í tvo sólarhringa í vari við Reykjanes. Síðan hófust veiðar í misjöfnu veðri en staðreyndin er sú að það var lítið af síld að sjá. Við fengum aflann 50-80 mílur vestur af Reykjanesi. Nú eru þessar síldveiðar búnar í bili og kolmunnaveiðar eru næst á dagskrá,“ segir Sturla.