Hæstiréttur Íslands hefur samþykkt að taka fyrir áfrýjun Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og íslenska ríkisins í makrílmálinu svonefnda sem einnig snýr að útgerðinni Huginn sem er nú í eigu Vinnslustöðvarinnar. Hæstiréttur telur að dómur í málunum geti haft fordæmisgildi um sönnunarfærslu og ákvörðun um fjártjón. RUV sagði fyrst frá þessu.

Tekist er á um úthlutun veiðiheimilda á makríl á árunum 2011-2018. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi ríkið til að greiða útgerðarfélögunum 1 milljarð króna í bætur. Fyrir Landsrétti voru bætur lækkaðar 269 milljónir króna.