Gústaf Baldvinsson lætur af daglegum störfum hjá samstæðu Samherja í júní, að því er fram kemur í frétt frá fyrirtækinu.
Gústaf hefur verið framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood frá því að félagið var stofnað árið 2007 til að selja og markaðssetja afurðir Samherja á alþjóðlegum mörkuðum. Samhliða því hefur hann verið framkvæmdastjóri Seagold í Bretlandi sem hann stofnaði ásamt Samherja árið 1996.
Ice Fresh Seafood selur allar afurðir Samherja og einnig afurðir fyrir Öldu Seafood, Síldarvinnsluna og Vísi. Félagið hefur vaxið samhliða auknum umsvifum Samherja og selur árlega 80-100 þúsund tonn af afurðum að verðmæti 55-70 milljarða króna. Ice Fresh Seafood er með starfsemi á helstu afurðamörkuðum sínum. Hjá félaginu og dóttur- og samrekstrarfélögum starfa um 130 manns á níu starfsstöðvum í fimm löndum.
Hermann Stefánsson tekur við
Hermann Stefánsson tekur við starfi Gústafs hjá Ice Fresh Seafood. Hermann er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri, hefur víðtæka stjórnunarreynslu og hefur starfað við sjávarútveg um árabil. Hann var útgerðarstjóri Borgeyjar á árunum 1995-1999, framleiðslustjóri hjá Skinney-Þinganesi 1999-2010, framkvæmdastjóri Iceland-Pelagic 2010-2018 og forstjóri ÍSAM 2018-2024. Hermann hóf störf hjá Ice Fresh Seafood sl. haust og verður staðsettur á Akureyri.

Orri Gústafsson tekur við starfi Gústafs hjá Seagold. Orri er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og Tokyo University of Marine Science og er einnig með MBA í alþjóðaviðskiptum. Orri hefur starfað hjá Samherja og dótturfélögum frá 2009, fyrst með námi á árunum 2009-2013, svo hjá Ice Fresh Seafood á Íslandi 2015-2016, í Bandaríkjunum hjá Slade Gorton 2016-2020 og Aquanor 2020-2024 og loks hjá Seagold í Bretlandi frá 2024. Orri verður staðsettur í Bretlandi.

Þótt Gústaf láti nú af daglegum störfum mun hann vera félögunum til ráðgjafar næsta árið.
Á þessum tímamótum voru kveðjuorð Gústafs þessi:
„Það eru forréttindi að hafa fengið að taka þátt í þeirri vegferð sem vöxtur Samherja hefur verið síðustu 30 árin. Ég hef orðið þeirrar gæfu aðnjótandi að vinna með framúrskarandi fólki á öllum vígstöðum og hverf ég þakklátur frá borði vitandi að ég skil við félagið í góðum höndum. Ég er sannfærður um það að með þann mannauð sem fyrirtækið býr að verður framtíð þess áfram björt.“