Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í morgun og landar þar 113 tonnum í dag. Aflinn er mest þorskur. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Hjálmar Ólaf Bjarnason skipstjóra og spurði fyrst hvar hefði verið veitt.

„Við byrjuðum í ýsu og þorski á Glettinganesflaki og síðan á Digranesnesflaki. Þá var haldið suður á bóginn með viðkomu á Skrúðsgrunni. Leitað var að ufsa frá Berufjarðarál og allt vestur á Stokksnesgrunn með litlum árangri. Það reynist okkur erfitt að ná í ufsa og reyndar einnig karfa þó talsvert sé reynt. Í þessum túr var veður með betra móti öfugt við túrinn á undan en þá var veðrið hundleiðinlegt,” sagði Hjálmar Ólafur.

Gullver mun halda til veiða á ný síðdegis í dag.