Ísfisktogarinn Gullver NS landaði 71 tonni á Seyðisfirði sl. mánudag og aftur 55 tonnum í morgun. Afli skipsins var mestmegnis þorskur í báðum túrum. Þórhallur Jónsson var skipstjóri í fyrri túrnum en Steinþór Hálfdanarson í þeim síðari.

Í kálgarðinum heima

Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Steinþórs og spurði fyrst hvort hann væri ekki hættur á sjó. „Jú, blessaður vertu, ég er hættur en auðvitað er maður tilbúinn að taka túr og túr þegar þannig stendur á. Þetta var örstuttur túr hjá okkur eða rúmlega tveir sólarhringar. Það aflaðist alveg þolanlega, þetta var ágætis nudd og fiskurinn sem fékkst var góður. Við vorum bara að veiðum hér í Seyðisfjarðardýpinu, í kálgarðinum heima. Gert er ráð fyrir að farið verði út á ný síðdegis á morgun en þá ætti brælan sem nú er vera farin að ganga niður. Ég held að verði fínt veður á laugardag,“ segir Steinþór.