Ísfisktogarinn Gullver NS kom til Seyðisfjarðar í gærmorgun og landaði þar 105 tonnum. Hjálmar Ólafur Bjarnason var þokkalega sáttur við túrinn.

„Við hófum túrinn á að sækja fiskikör sem voru í fjörunni út með Seyðisfirði. Þetta voru kör sem hafa væntanlega fokið í sjóinn og rekið þarna á land. Körin voru býsna áberandi og sjálfsagt að fjarlægja þau. Að hreinsunarstarfinu loknu var haldið út á Pung og á Þórsbankann en þar var lítið að hafa. Þá var haldið í Berufjarðarál og á Hvalbakssvæðið og þar fékkst aflinn að mestu. Þetta var helst ýsa eða 47 tonn og síðan 32 tonn af þorski og 22 af karfa. Það hefur í reynd fiskast ágætlega að undanförnu á þessum slóðum,” sagði Hjálmar Ólafur við tíðindamann heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Gullver hélt á ný til veiða í morgun.