Ákveðið hefur verið að Gullberg ehf. á Seyðisfirði verði sameinað Síldarvinnslunni um áramótin. Gullberg rekur fiskvinnslustöð á Seyðisfirði og gerir út togarann Gullver NS. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar.
Síldarvinnslan festi kaup á félaginu haustið 2014 en starfsemin á Seyðisfirði hefur engu að síður verið rekin í nafni þess síðan.
Sameiningin er fyrst og fremst gerð til að einfalda starfsemina og gera hana auðveldari en réttindi starfsfólks Gullbergs breytast ekkert og ekki eru fyrirhugaðar neinar breytingar á rekstrinum.
Kynningarfundur um sameininguna var haldinn með starfsfólki Gullbergs sl. mánudag.