Gríðarlegt magn af dauðri síld er á fjörum í Kolgrafarfirði á Snæfellsnesi. Samkvæmt lýsingum sjónvarvotta í gær var magn dauðrar síldar talið í a.m.k. hundruðum tonna, að því er segir á vef Skessuhorn s. Ábúendur á Eiði við Kolgrafafjörð áætla að síldarflekkurinn hafi síðdegis í gær verið um ferkílómetri að stærð.

Starfsmaður Hafrannsóknastofnunar í Ólafsvík var við sýnatöku í firðinum í gær. Menn frá G Run. hf. í Grundarfirði voru í gær við dýptarmælingar inni á Kolgrafafirði og urðu varir við gríðarlegt magn af síld. Eftir mælingar þeirra og vísindamanna í fyrravetur á magni síldar inni á firðinum áætlaði Hafró að 285 þúsund tonn hefðu verið inni þar þá. Runólfur Guðmundsson hjá GRun áætlar að, og ítrekar að hann styðjist við sjónmat sitt, hafi magnið nú verið meira ef eitthvað er þannig að gera megi ráð fyrir að á fjórða hundrað þúsund tonna af síld séu í Kolgrafafirði. Þessi síld gæti allt eins öll verið að drepast.

Um ástæður þess að síldin gangi á land nú segir Runólfur í samtali við Skessuhorn að hvorki hann né aðrir geti fullyrt neitt. Eitthvað óvenjulegt sé þó að gerast í náttúrunni. Telur hann þó ólíklegt að kenna megi súrefnisskorti um, allt eins megi varpa fram þeirri tilgátu að undirkæling á fjarðarbotninum sé að verða vegna veðuraðstæðna, frosts, stillu og bjartviðris, og sé síldin því vönkuð og hreinlega að flýja kuldann og rati ekki undir brúna og út á Breiðafjörðinn aftur. Fleiri vísindamenn voru væntanlegir á svæðið í gærkvöldi og í dag og verður m.a. hitastig og súrefni mælt auk sýnatöku af dauðri síld.