„Þessi skýrsla ESB kemur ekki á óvart og er í raun staðfesting á öllu því sem við höfum sagt um áhrif hugsanlegrar aðildar að sambandinu á sjávarútveginn á Íslandi," segir Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna um greiningarskýrslu (e. Analytical Report) framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands að ESB, sem kynnt var í gær.
Friðrik telur ummæli utanríkisráðherra í fjölmiðlum í gær litlu samhengi við raunveruleikann. Þar gaf ráðherra í skyn að Ísland yrði áhrifavaldur í sjávarútvegsmálum innan ESB kæmi til aðildar. „Reynslan hefur kennt okkur að hugmyndir um ætluð áhrif okkar á sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins eru stórlega ýktar," segir Friðrik.
Friðrik segir að í niðurstöðum skýrslunnar komi skýrt fram, að komi til aðildar að ESB þurfi Ísland að gangast undir sameiginlega fiskveiðistefnu sambandsins. „Skýrslan staðfestir að við missum forræðið yfir fiskimiðunum. Einnig þyrftum við að laga okkur að reglum sambandsins um jafnan aðgang að fiskimiðum, jafnframt því sem afnema þyrfti takmarkanir á fjárfestingum erlendra aðila í sjávarútvegi á Íslandi. Síðast en ekki síst er staðfest í skýrslunni að við yrðum að framselja allt fyrirsvar á á alþjóðavettvangi í hendur ESB," segir Friðrik.
Frá þessu er skýrt á vef LÍÚ.
Niðurstöður kaflans um sjávarútveg er að finna á bls. 73 í skýrslunni og hann má sjá HÉR . Greiningarskýrsluna alla má nálgast á vef utanríkisráðuneytisins.