Sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð þar sem kveðið er á um fjölda veiðidaga á grásleppuvertíðinni til bráðabirgða þar til lokaráðgjöf Hafrannsóknastofnunar liggur fyrir um mánaðamótin mars/apríl. Upphafsfjöldi daga er sá sami og áður eða 20 veiðidagar. Reglugerð um hrognkelsaveiðar 2017

Engar breytingar eru gerðar á reglugerðinni utan að ákvæði um upphafs- og lokatíma veiða er breytt í sama horf og var 2015, þ.e. vertíðin fyrir norðan og víðar má hefjast 20. mars. Í byrjun árs 2016 kom Hafrannsóknastofnun fram með ráðgjöf til ráðuneytisins um að svo virtist sem skipti máli til að draga úr meðafla að veiðin hæfist seinna. Brugðist var við þessum ábendingum.

Í bréfi Hafrannsóknastofnunar sem barst ráðuneytinu 24. mars kemur fram að reynslan af síðustu vertíð sýni ekki að þessi aðgerð hafi heppnast. Þvert á móti hefði skráður meðafli 2016 ekki verið meiri um árabil.