Útflutningsverðmæti grásleppuhrogna og kavíars á síðasta ári nam 2.551 milljón króna. Það er samdráttur um tæpa 1,3 milljarða milli ára, sem skýrist að mestu af minni veiði, að því er fram kemur á vef Landssambands smábátaeigenda.
Veiðin á vertíðinni 2011 jafngilti 10.700 tunnum af söltuðum hrognum sem var 40% minna en á metvertíðinni 2010.
Verð á söltuðum hrognum og kavíar hreyfðist lítið milli áranna 2010 og 2011, sem er nýmæli á þessari vöru, segir á vef LS.