Útgerðarfélagið West Atlantic AS í Tromsø í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Að útgerðinni stendur Bjarni Sigurðsson, Íslendingur sem verið hefur búsettur í Noregi í áratugi.
Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Jorunn B. Báturinn mælist 9 brúttótonn. Jorunn B er af gerðinni Cleopatra 31. Báturinn er sérútbúinn til netaveiða á grásleppu sem haldið er lifandi. Sjótankur er í lest til að auðvelda flutning á lifandi fiski.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT N67 420hö tengd ZF286IV gír. Báturinn er útbúinn siglingatækjum af gerðinni JRC frá Sónar. Báturinn er einnig útbúin með hliðarskrúfu að framan tengdri sjálfstýringu bátsins. Öryggisbúnaður kemur frá Viking.
Rými er fyrir 12 stk. 380 lítra kör í lest. Svefnpláss er fyrir 2til 3 menn í lúkar ásamt eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofni og ísskáp.