Þrjú skip komu til Neskaupstaðar með góðan kolmunnaafla um helgina. Fyrstur kom Beitir NK með 3.000 tonn, síðan Vilhelm Þorsteinsson EA með 2.500 tonn og loks Börkur NK með 2.800 tonn. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við skipstjórana á Beiti og Berki og spurði um veiðina.

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, sagði að veiðin hefði gengið vel. „Við fengum aflann í sex holum og það var dregið í tvo til tólf tíma. Holin voru misjafnlega stór eða frá 240 tonnum og upp í 770 tonn. Í stærsta holinu var dregið í sex tíma. Veður var hið fínasta mest allan tímann. Við hófum veiðarnar 240 mílur vestur af syðsta hluta Írlands en færðum okkur síðan 180 mílur í norður og vorum þá suðvestur af Rockall,” sagði Tómas.

Hjörvar Hjálmarsson, skipstjóri á Berki, var einnig þokkalega sáttur við veiðina. „Við fengum aflann í átta holum og drógum yfirleitt tiltölulega lengi. Stærsta holið var 600 tonn. Aflinn var misjafn enda var kolmunninn í blettum og það var misjafnt hvernig maður hitti á þá. Heilt yfir var ekki mikill kraftur í veiðinni enda hverfur kolmunninn yfirleitt um þetta leyti og veiðist ekki fyrir alvöru á ný fyrr en hann er kominn inn í færeysku lögsöguna. Þar erum við líka vanir að taka mest af honum. Ég geri ráð fyrir að hann fari að veiðast í færeyskri lögsögu snemma í aprílmánuði,“ sagði Hjörvar.