„Mitt mat er það að þessi loðnuvertíð hafi verið virkilega vel heppnuð þrátt fyrir erfitt tíðarfar,“ segir Garðar Svavarsson deildarstjóri uppsjávarsviðs HB Granda í samtali við Fiskifréttir. ,,Tekist hefur einstaklega vel að gera verðmæti úr þeim afla sem fengist hefur og það er afar vel af sér vikið af flotanum að komast þetta langt með kvótann og jafnvel ná honum öllum þrátt fyrir ótíðina.“
Nærri lætur að á bilinu 40-50 þúsund tonn séu óveidd af úthlutuðum loðnukvóta íslenskra skipa eða rúmlega 10%. Að sögn Garðars voru í gærmorgun um 10.000 tonn óveidd af loðnukvóta HB Granda upp á 72.000 tonn. „Við þurfum ekki marga daga í viðbót til þess að klára kvótann,“ sagði Garðar.
Sjá nánar umfjöllun um loðnuvertíðina í máli og myndum í nýjustu Fiskifréttum.