,,Það er búin að vera mjög góð kolmunnaveiði hér í færeysku lögsögunni. Þetta er okkar önnur veiðiferð á kolmunnamiðin. Við vorum með um 2.600 tonna afla í fyrri túrnum og mér sýnist að þetta verði svipað núna. Þar með er kvóti ársins búinn hjá okkur.“
Þetta sagði Róbert Axelsson, skipstjóri á Venusi NS, í spjalli á heimasíðu HB Granda er rætt var við hann um hádegisbilið í gær. Venus var þá að veiðum norðaustan við Færeyjar en þar voru þá fjögur íslensk skip og eitt rússneskt. Víkingur AK var á leiðinni á miðin.
,,Það er búin að vera jöfn og góð veiði frá því áður en við komum á miðin. Við höfum togað frá um fimm tímum og upp í 11 tíma mest og aflinn hefur verið frá 400 tonnum og upp í um 600 tonn í holi,“ segir Róbert en hann segir kolmunnann vera af jafnri stærð og hann sé í góðum holdum.
,,Það er mikill munur á að stunda veiðarnar nú en á sama tíma í fyrra. Þá var alltaf kolvitlaust veður en það sem af er þessum vetri hefur verið stöðug blíða,“ segir Róbert Axelsson.