Þrjú skip HB Granda eru farin til kolmunnaveiða og verður ekki annað sagt en að vertíðin fari vel af stað, að því er fram kemur á heimasíðu útgerðarinnar .  Ingunn AK var fyrst á miðin og er skipið nú á heimleið með um 1.900 tonna afla eftir tvo sólarhringa á veiðum. Mikið er reyndar haft fyrir veiðunum því miðin eru undan vesturströnd Írlands eða hátt í 700 sjómílna fjarlægð frá Íslandi.

Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar, deildarstjóra uppsjárvarsviðs HB Granda, var Ingunn komin á miðin um miðnætti sl. föstudags. Faxi RE er nú búinn að vera í rúman sólarhring á miðunum og afli skipsins var kominn í tæplega 800 tonn fyrr í dag. Lundey NS kom á svæðið í morgun.

Loðnuveiðum skipa HB Granda lauk í síðustu viku en kvóti félagsins á vertíðinni var alls 20.500 tonn. Vertíðin var stutt en snörp. Fyrsti loðnuaflinn barst á land á Akranesi þann 18. febrúar og Víkingur AK kom með síðasta farminn til Vopnafjarðar þann 12. mars sl. Allur aflinn fór í hrognaskurð og vinnslu á hrognum fyrir markaði í Japan og Austur-Evrópu. Allt bendir til þess að loðnuvertíðinni sé lokið að þessu sinni. Vonir voru helst bundnar við svokallaða vestangöngu en ekki varð vart við neina loðnu vestur og norður af landinu í heimsiglingu Víkings til Akraness.