Aðfaranótt mánudags var gerð árás á höfuðstöðvar eins af viðskiptavinum Vinnslustöðvarinnar í Úkraínu.
Þetta kemur fram á vef Vinnslustöðvarinnar. Umrætt fyrirtækið er sagt vera með alls 25 verslanir vítt og breitt um Úkraínu. Flestar þeirra sé í borginni Sumy.
„Það var áfall að fá þær fréttir í byrjun vikunnar að einn af okkar viðskiptavinum IE Kulomza í Úkraínu hefði orðið fyrir drónaáras af hendi Rússa. Skemmdirnar eru gríðarlegar en þar sem árásin var gerð að næturlagi var verksmiðjan mannlaus og sem betur fer urðu ekki slys á fólki. Óvíst er hvort þeir reisi sig við eftir þessi ósköp. Stærsti hluti framleiðslunnar, vöruhús og skrifstofur gjöreyðilögðust ásamt um 400 tonnum af sjávarafurðum,” er haft eftir Birni Matthíassyni, rekstrarstjóra VSV.
Allt hafi breyst á einni nóttu
Í samtali við Vinnslustöðvarvefinn segir Natalia Tsibulskaya, yfirmaður innkaupadeildar hjá IE Kulomza, að fyrirtækið hafi verið stofnað árið 2000.
„Á síðustu 25 árum höfum við byggt upp sterkt og traust fyrirtæki, með 350 starfsmenn. Þar á meðal starfsfólk sem vinnur í vörumerkjaverslunarkeðju sem tilheyrir fyrirtækinu okkar. Í mörg ár í röð hefur fyrirtækið okkar verið stærsti skattgreiðandi í Sumy-svæðinu og lagt mikið til þróunar á staðbundnu efnahagslífi og samfélagsþróun. Við erum fullvinnslufyrirtæki sem inniheldur eigin innflutning á frystum fiski og sjávarfangi, framleiðslu á fullunnum fiskvörum, heildsölu og smásölu í gegnum verslunarkeðju okkar,“ er haft eftir Nataliu. Allt þetta hafi breyst á einni nóttu.
Átta rússneskir drónar
„Aðfaranótt 7. apríl var ráðist á fyrirtækið okkar af átta rússneskum drónum sem ollu miklum sprengjum og eldi sem logaði yfir svæðinu þar sem aðstaða okkar er staðsett. Guð sé lof að enginn starfsmaður okkar slasaðist, þar sem árásin átti sér stað að nóttu til. Hins vegar eru afleiðingarnar hræðilegar. Kælirými okkar og skrifstofubyggingar hafa verið eyðilagðar. Af fimm vinnsludeildum verksmiðjunnar er aðeins ein - sú sem framleiðir reyktar vörur - í lagi. Bílageymslan okkar, sem notuð var til afhendingar á vörum, var einnig eyðilögð. Nú hefur fólk úr okkar teymi unnið dag og nótt við að hreinsa rústirnar,” segir Natalia við Vinnslustöðvarvefinn þar sem sjá má fleiri myndir af afleiðingum drónaárásarinnar.