Sjávarútvegsráðstefnan, hin fimmta í röðinni, verður haldin á Grand Hótel Reykjavík dagana 20.-21. nóvember. Á Sjávarútvegsráðstefnunni 2013 voru skráðir þátttakendur 550 talsins.  Skipuleggjendur gera ráð fyrir a.m.k. 500 manns skrái sig að þessu sinni.

Málstofur eru 10 og flutt verða rúmlega 40 erindi. Á ráðstefnunni verða að venju veitt verðlaun fyrir bestu framúrstefnuhugmyndina.

Stofnað var til sjávarútvegsráðstefnunnar á sínum tíma til að skapa samskiptavettvang allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi. Innan þessa hóps eru þeir sem starfa við veiðar, eldi, frumvinnslu, framhaldsvinnslu, sölu og markaðssetningu, þjónustu og rannsóknir og þróun, einnig opinberir aðilar, kennarar og nemendur, fjölmiðlar og aðrir áhugamenn.

Sjá nánar dagsskrá ráðstefnunnar á vef hennar, HÉR. Þar er einnig hægt að skrá sig.