Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq kom til Neskaupstaðar í morgun með fullfermi af frosinni loðnu. Skipið hefur verið í loðnuleiðangri í samvinnu við Hafrannsóknastofnun og leitaði loðnu út af Þverálshorni, á Grænlandssundi og úti fyrir Norðurlandi. Hafði skipið heimild til að taka sýni með flotvörpu og fékkst allur aflinn í þremur stuttum holum en eins voru tekin sýni fyrir norðan land.

Geir Zoëga skipstjóri segir í samtali á vef Síldarvinnslunnar að þessi loðnuleitartúr hafi gengið afskaplega vel og samvinnan við Hafrannsóknastofnun hafi verið einstaklega góð.

„Við byrjuðum að leita fyrir vestan, út af Þverálshorni og á Grænlandssundinu, og skemmst frá að segja fundum við þar mjög mikla loðnu. Við komumst alls ekki yfir allt það svæði sem loðnu var að finna á þarna vesturfrá. Og þetta var stór og fín loðna, það sást á aflanum sem við fengum. Þá könnuðum við svæðið úti fyrir Norðurlandi og þar er að finna dreifða loðnu allt austur á Kolbeinseyjarhrygg. Við tókum einnig sýni úr þeirri loðnu. Sannast sagna finnst okkur þetta líta afar vel út og ekkert fer á milli mála að það er mikið af loðnu þarna á ferðinni. Við hér um borð erum alsælir með þennan túr, bæði vegna þess að hann gefur fyrirheit um góða loðnuvertíð og eins vegna þess árangurs sem við náðum í vinnslunni um borð. Það tók okkur einungis fjóra daga að fylla skipið af frosinni loðnu en það eru 655 tonn. Meðalvinnslan var 163 tonn á sólarhring og í túrnum var sett met í sólarhringsafköstum – 168 tonn. Hér um borð ríkir bara gleði,“ sagði Geir að lokum.