Feðgarnir Þorsteinn Jónsson og Þorsteinn Þorsteinsson reka Nonna hf. sem hefur umboð fyrir Mitsubishi bátavélar og mun Þorsteinn Jónsson sjá um daglegan rekstur Bátalóns en Þorsteinn yngri um reksturinn á Nonna hf. Hjalti Sigfússon sem rekið hefur vélsmiðju á Árskógsströnd hyggst nú selja hana og veita forstöðu vélsmiðju sem koma á upp í Bátalóni. Fiskifréttir ræddu við þá félaga á dögunum og voru þeir spurðir um ástæður kaupanna.
„Nonni hf. hefur á fjórum og hálfu ári flutt inn um 300 Mitsubishi vélar og séð um að útgerðarmenn hafi fengið nauðsynlega þjónustu vegna þeirra. Sú þjónusta hefur farið fram gegnum vélsmiðjur víða um land en með því að fá þessa aðstöðu hér getum við komið upp fullkominni vélsmiðju og tekið að okkur þessa þjónustu sjálfir að mestu leyti. Að sjálfsögðu munum við annast viðgerðir á flestum tegundum véla og búnaðar, sérhæfða þjónustu á öllum gerðum afgastúrbína fyrir dísilvélar og sérhæfða þjónustu fyrir glussakerfi.“
Fullkomin aðstaða
„Þar að auki er hér ein fullkomnasta aðstaða á öllu landinu til bátasmíði og viðgerða. Hér eru tvær brautir, önnur getur tekið allt að 30 tonna báta en hin allt að 150 tonna. Ef lónið verður hreinsað verður aðstaðan enn betri og getum við þá tekið upp allt að 250 tonna skip. Þá er einnig nauðsynlegt að byggja nýjan viðlegukant sem reyndar er byrjað á.“
Þá upplýstu þeir félagar að starfsemi Bátalóns yrði áfram með svipuðum hætti að öðru leyti en því að tækjakostur verður bættur og komið upp fullkominni vélsmiðju.
„Hér hafa að undanförnu starfað 12 menn sem verða áfram hjá okkur en síðan er hugmyndin að bæta við mannskap, segja þeir enn fremur. Við hyggjumst hafa 10 menn í vélsmiðju, 5 í trésmiðjunni og síðan 12 til 15 við stáliðjuna. Við höfum þegar ráðið 8 menn sem koma á næstu vikum og fleiri eru á leiðinni. Takmarkið er að hafa milli 30 og 35 menn á gólfinu og síðan bætast við starfsmenn á skrifstofu.“

Er það ekki mikil bjartsýni að taka við svona starfsemi þegar svo lítið er um skipasmíði um þessar mundir?
„Það má vel vera,“ segir Þorsteinn Jónsson. „Og í byrjun verður reksturinn miðaður við þjónustu- og viðhaldsverkefni en við verðum ávallt reiðubúnir að hefja nýsmíði þegar þau mál þreytast. Samt er það svo að við erum þegar eftir þessa fáu daga farnir að fá fyrirspurnir um hvort við getum tekið að okkur eitt og annað.“
Eiga hálfsmíðaðan bát

„Við erum hér með skrokk af 15 tonna bát sem var byrjað á fyrir einum þrem eða fjórum árum og hugmyndin er að ljúka við hann. Verð hans í dag er kannski kringum 3 milljónir og við þurfum að setja í hann vélar og tæki og reyna að selja hann. Ég gæti trúað að hann kostaði milli 6 og 7 milljónir króna fullbúinn og það verður bara að koma í ljós hvort kaupandi fæst.“
Þeir félagar yfirtóku reksturinn þannig að þeir keyptu hlut fyrri eigenda Bátalóns. Ráðgerð er um 5 milljón króna hlutafjáraukning og að með því geti þeir keypt ýmsan nýjan búnað og verður í fyrstunni unnið að endurskipulagningu á húsnæðinu og rekstrinum sem þó verður ekki stöðvaður.
„Bátalón var stofnað fyrir um 40 árum og hefur byggt um 470 báta sem reynst hafa vel og þetta er þekkt fyrirtæki. Þrátt fyrir að reksturinn hafi kannski ekki gengið sem skyldi síðustu misserin teljum við mögulegt að drífa upp meiri starfsemi og fjölbreyttari og þess vegna förum við út í þetta,“ segja þeir félagar að lokum.