Upp úr klukkan fjögur í morgun tók varðskipið Ægir norska línuskipið TORITA í tog undan austurströnd Grænlands. Beiðni um aðstoð frá skipinu barst Landhelgisgæslunni á miðvikudag þegar það var statt um 500 sml SV af Garðskaga eða á mörkum íslenska leitar- og björgunarsvæðisins og þess grænlenska.

TORITA  er 377 tonna línuskip og um 40 metra langt. Ef ferð skipanna gengur samkvæmt áætlun verða þau kominn til hafnar á sunnudagskvöld eða aðfaranótt mánudags.