Föstudaginn fyrir viku fóru fyrstu flutningarnir frá seiðastöð Laxeyjar í Vestmannaeyjum yfir í áframeldið í Viðlagafjöru.

Frá þessu segir í færslu á vef Laxeyjar í dag. Eru flutningarnir sagðir hafa heppnast afar vel.

„Fyrir einu ári síðan fékk Laxey sinn fyrsta skammt af hrognum, sem síðan hafa vaxið í gegnum ferlið á seiðastöðinni okkar. Nú eru þau tilbúin að halda áfram vexti sínum í áframeldinu í Viðlagafjöru. Fyrst um sinn verða þau í stórseiðahúsinu, en að lokum verða þau flutt í áframeldiskerin þegar rétti tíminn er kominn,“ segir á laxey.is.

Sagt er að til að tryggja farsælan flutning hafi allt þurft að ganga upp.

„Framkvæmdir þurftu að vera á áætlun, allur tæknibúnaður uppsettur, gangsettur og prófaður. Mikið hrós og tækni- og framkvæmdarteymi félagsins til að tryggja að stórseiðahúsið sé klárt á tíma. Mikil vinna hefur því farið fram undanfarnar vikur til að undirbúa þetta skref. Stemningin hefur verið frábær, og allir einbeittir og staðráðnir í að láta flutninginn ganga upp. Flutningurinn gekk hnökralaust fyrir sig og lífmassinn er að aðlagast vel nýju umhverfi sínu,“ segir um þessi tímamót hjá Laxey á vef fyrirtækisins.