Vilhelm Þorsteinsson EA er væntanlegur til Neskaupstaðar í fyrramálið með fyrsta makrílfarminn sem þangað berst á árinu. Í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar er allt klárt til að hefja vinnslu og er það um viku fyrr en á síðasta ári. Rætt er við Guðmund Þ. Jónsson skipstjóra á Vilhelm Þorsteinssyni á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

„Mér líst alveg þokkalega á þetta. Við erum með 1.040 tonn um borð og af því er um 15% síld. Makríllinn er stór og fallegur. Þetta er um 470 gramma fiskur. Við erum í veiðisamstarfi með Margréti EA og Síldarvinnsluskipunum Berki, Beiti og Barða. Aflinn í fyrsta hring var um 890 tonn en Barði og Margrét voru að partrolla. Við tókum síðan eitt 140 tonna hol til viðbótar þessum hring. Það hefur síðan gengið þokkalega hjá skipunum eftir að við lögðum af stað í land. Veiðisvæðið er úti í Smugu alveg við norsku línuna og nú fjölgar skipunum ört á miðunum. Það eru öll íslensku skipin komin af stað núna og það er ljóst að það verður heljarmikil traffík á þessu,” sagði Guðmundur.

Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri. Mynd/Samherji
Guðmundur Þ. Jónsson skipstjóri. Mynd/Samherji