Beitir NK landar nú um hádegisbilið rétt um 500 tonnum af makríl sem fékkst á Rauða torginu innan íslensku lögsögunnar. Þetta er fyrsti makrílfarmur vertíðarinnar og segir Tómas Kárason skipstjóri að þetta viti á gott.

Uppsjávarskip Skinneyjar-Þinganess, Jóna Eðvalds SF 200 og Ásgrímur Halldórsson SF 250 fengu einnig makríl á sömu slóðum.

Makríllinn sem fékkst hjá Beiti var vænn og allur yfir 500 grömm og allt upp 570 grömm. Skipinu var beint inn til löndunar til að hefja vinnslu á rólegri nótum til að slípa af alla vankanta áður en meira magn fer að berast til vinnslunnar.

Skip Brims og Eskju héldu til makrílleitar í Smuguna og eru þar stödd.

Fyrsta makrílfarminum landað úr Beiti NK í hádeginu. Mynd/Hákon Ernuson

Allt tilbúið fyrir vinnslu

Karl Rúnar Róbertsson gæðastjóri segir að allt sé tilbúið í verinu. „Hér er allt yfirfarið, tandurhreint og fínt og mannskapurinn er klár í slaginn. Samkvæmt fréttum frá Beiti þá er um að ræða stóran makríl, yfir 500 grömm og átan í honum er um 3 þannig að þetta lítur vel út,” segir Karl Rúnar.

Makríllinn sem Beitir fékk var allur yfir 500 grömm. Mynd/Hákon Ernuson

Síðan er von á Vilhelm Þorsteinssyni EA úr Smugunni í fyrramálið með 851 tonn af makríl, en þar er um að ræða afla sem Vilhelm og Börkur NK hafa fengið þar að undanförnu.

Eins og greint hefur verið frá munu Síldarvinnsluskipin Beitir NK, Börkur NK og Barði NK hafa með sér veiðisamstarf við makrílveiðarnar ásamt Samherjaskipunum Vilhelm Þorsteinssyni EA og Margréti EA. Beitir, Börkur og Vilhelm hafa verið að veiðum síðustu daga en Barði og Margrét héldu til veiða í gær.