Útgerðin Ruth A/S frá Hirtshals í Danmörku hefur pantað smíði á nýju 88 metrar löngu og 17 metra breiðu tog- og nótaskip hjá dönsku Karstensens skipasmíðastöðinni. Skipið mun geta toga með tveimur trollum samtímis og er þetta fyrsta uppsjávarskipið í heiminum sem þannig er útbúið, að því er útgerðin og skipasmíðastöðin vita best.
Þar af leiðandi verða um borð í skipinu þrjár togvindur, fjórar netvindur og tvær fiskidælur hvor á sínu borði.
Kostnaður við smíði skipsins er áætlaður um 250 milljónir danskra króna eða jafnvirði um 5 milljarða íslenskra króna.
Sjá nánar á vef Fiskerforum