Vinna hafin við uppsetningu á fiskeldiskerjunum í Viðlagafjöru. Þetta kemur fram á heimasíðu laxeldisfyrirtækisins Laxeyjar í Vestmannaeyjum.

„Mikill vinna og undirbúningur hefur átt sér stað undanfarnar daga, vikur og mánuði við að undirbúa verkið og hófst uppsetning í dag. Hvert fiskeldisker fyrir áframeldið okkar eru 28 metrar í þvermál og rúmir 13 metrar á hæð og mun rúma 5.000 rúmmetra af sjó,“ segir á laxey.is.

Átta ker á þessu ári

Fram kemur að á þessu ári muni Laxey setja upp átta slík ker. Verkefnið og uppsetningin muni ná fram í haustið.

„Kerin eru mikil smíði bæði er varðar stærð og svo hönnun, það eru því ófáir starfsmenn LAXEY sem hafa setið á fundum varðandi kerin,“ segir á laxey.is.

Danska fyrirtækið A Consult hannar kerin og sér um uppsetninguna. Sagt er að ker af þessari gerð hafi verið notuð í öðrum verkefnum með mjög góðum árangri.