Mikilvægur áfangi náðist í starfsemi landeldisfyrirtækisins LAXEY í Vestmannaeyjum í gær þegar fyrsti hópur stórseiða var afhentur langtímasamstarfsaðila fyrirtækisins. Afhendingin markar upphafið að reglubundinni sölu á stórseiðum sem hluta af tvíþættu tekjulíkani fyrirtækisins.
Auk framleiðslu á laxi til manneldis mun LAXEY nýta hluta af framleiðslugetu sinni til ræktunar og sölu á hágæða stórseiðum til annarra laxeldisfyrirtækja. Þessi blandaða nálgun stuðlar að auknum rekstrarsveigjanleika og gerir fyrirtækinu kleift að hefja tekjuöflun áður en fullframleiðslu matfisks er náð.
Dælt í brunnbát úr stórseiðahúsi
Flutningur stórseiðanna fór fram með dælingu beint úr stórseiðahúsi LAXEY yfir í brunnbát samstarfsaðila og gekk afar vel. Undirbúningur hafði verið vandlega skipulagður til að tryggja örugga og árangursríka afhendingu.
Staðsetning LAXEY í Vestmannaeyjum er afar hentug fyrir slíka afhendingu, þar sem náttúruleg skjól og stutt siglingaleið út á opið haf gera aðstæður kjörnar fyrir flutninga og útflutning á stórseiðum.
Sala á stórseiðum getur jafnframt skilað ávinningi til viðskiptavina með því að stytta eldistíma í sjó og draga þannig úr líffræðilegri áhættu, lauk þess sem hún styrkir rekstraröryggi viðskiptavina.