Aðalfundur Íslenskra saltfiskframleiðenda (ÍSF) var haldinn í Reykjavík 7. nóvember sl., á sama tíma og Sjávarútvegsráðstefnan, eins og tíðkast hefur undanfarin ár. Ný stjórn var kjörin og formaður er Sverrir Haraldsson frá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.
Fyrirtækjum í söltun sjávarafurða hefur fækkað mjög á undanförnum árum en engu að síður er enn til staðar öflug framleiðsla og útflutningur saltfiskafurða frá Íslandi. Félagið var stofnað árið 2008. Félagið er vettvangur framleiðenda saltaðra fiskafurða, til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum og stuðla að rannsóknum og þróun í greininni.
Aðrir sem kjörnir voru í stjórn á fundinum eru Jóhann Helgason frá Vísi í Grindavík, varaformaður, Gunnlaugur Eiríksson frá Þorbirni í Grindavík, gjaldkeri og meðstjórnendur eru Arkadiusz Lakomski frá KG Fiskverkun í Rifi, Ágúst Már Gunnlaugsson frá GPG Seafood á Húsavík, Mjöll Guðjónsdóttir frá Soffaníasi Cecilssyni í Grundarfirði og Níels A. Guðmundsson frá Iceland Seafood. Sigurjón Arason frá Matís er stjórninni til ráðgjafar, eins og hann hefur verið frá upphafi félagsins.
Einn helsti samstarfsaðilili ÍSF hefur verið Matís sem unnið hefur fjölmörg rannsóknaverkefni í samstarfi við félagið.
Á aðalfundinum voru flutt tvö erindi sem bæði komu frá Matís og snerust þau um að kynna verkefni sem unnin hafa verið í samstarfi við ÍSF.
Verkefnið „Saltfisksvindl“
Davíð Gíslason, verkefnastjóri hjá Matís fór yfir stöðu verkefnisins „Saltfisksvindl - Eftirlit og upprunavottun fyrir Íslenskar saltfiskafurðir“. Verkefnið er unnið af Matís, í samstarfi við saltfiskframleiðendur. Markmið verkefnisins er að þróa skilvirkar aðferðir til að greina og sannreyna uppruna saltfisks. Nú þegar hefur verkefnið leitt í ljós áhugaverðar staðreyndir í þessum efnum. Verkefnið er enn í vinnslu og endanlegra niðurstaðna er að vænta fljótlega.
Önnur saltfiskverkefni Matís
Kolbrún Sveinsdóttir flutti því næst erindi sitt sem nefndist „ Er saltfiskur í boði“. Kolbrún er verkefnastjóri hjá Matís og gestaprófessor við Matvæla- og næringarfræðideild, Heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands. Hún hefur í starfi sínu hjá Matís stýrt saltfisktengdum verkefnum Matís sem hún sagði frá í erindi sínu.
Matís gerði árið 2019, könnun á neyslu viðhorfum gagnvart saltfiski og voru niðurstöður þeirrar könnunar afar áhugaverðar. Ímynd saltfisks á Íslandi skiptir miklu máli fyrir útflutning og markaðsstarf erlendis. Saltfiskur er sögu- og menningarleg arfleifð sem Íslendingar eiga að vera stoltir af.
„Saltfiskkræsingar“
Einnig hefur Matís unnið að verkefninu „Saltfiskkræsingar“ síðan árið 2022 en það er hluti samstarfsverkefnis Íslendinga, Norðmanna og Færeyinga undir nafninu „Trendy Cod“. Markmið verkefnisins Saltfiskkræsingar er að efla tengsl innan virðiskeðjunnar, auka þekkingu, virðingu og neyslu á saltfiski auk þess að þróa nýja eða bætta tilbúna rétti sem byggja á hefðbundum saltfiski. Verkefnið er umfangsmikið og hefur verið unnið í samstarfi Matís, Gríms Kokks, Menntaskólans í Kópavogi, Íslenskra saltfiskframleiðenda, Vinnslustöðvarinnar í Vestamannaeyjum, Klúbbs matreiðslumeistara og Íslandsstofu. Verkefnið er í enn í vinnslu og verið er að undirbúa næstu skref.
Talsverðar umræður voru á fundinum að erindunum loknum, enda efnið bæði áhugavert og vel fram sett. Mikilvægt er að stuðla að því frekari þekkingu á breiðu sviði sem hægt er að hagnýta í framleiðslu, sölu og dreifingu.