Fiskistofa hefur minnt sjómenn og útgerðaraðila á að í janúar verði fylgst með veiðum úr ómönnuðum loftförum. Í tilkynningu á heimasíðu stofnunarinnar segir að eftirlitsmenn Fiskistofu munu fljúga ómönnuðum loftförum til eftirlits í janúar. Minnt er á að allar upptökur eru skoðaðar vel og fiskur sem fer fyrir borð er tegundargreindur.

Í reglum og lögum um stjórn fiskveiða eru nokkur atriði sem Fiskistofa vill biðja sjómenn og útgerðaraðila að kynna sér vel. Bent er á að óhætt er að sleppa hlýra og ef hann er lífvænlegur en skylt er að sleppa beinhákarli, háfi og hámeri, ef lífvænleg. Þá er heimilt er að sleppa lífvænlegri tindaskötu og sleppa á grásleppu sem fæst í þorskfiskanet. Heimilt er að sleppa lífvænlegum rauðmaga við hrognkelsaveiðar en komi lúða um borð í veiðiskip sem meðafli á umsvifalaust að sleppa henni ef hún er lífvænleg. Við línuveiðar skal sleppa allri lúðu með því að skera á taum línunnar. Við handfæra- og sjóstangaveiðar á að losa lúðu varfærnislega af krókum eða skera á lykkju slóðans áður en lúða kemur um borð.