„Markmiðið er að styrkja þau bönd sem nú þegar eru fyrir í Asíu og hitta okkar helstu viðskiptavini sem sækja sýninguna ásamt því að kynna afurðir okkar fyrir áhugasömum kaupendum,“ segir Björn Matthíasson, rekstrarstjóri VSV Seafood, Iceland sem nú er staddur á sjávarútvegssýningu í Qingdao í Kína.

Óvissa með loðnu setur strik í reikninginn

Rætt er við Björn á vefsíðu Vinnslustöðvarinnar. Þar segir að mikill áhugi sé á íslensku sjávarfangi sem fyrr. Enginn markaður hafi stækkað eins hratt á síðustu árum og Kína og hafi nú neyslan náð yfir 34 kg á hvern íbúa. Kína sé nú annað stærsta innflutningsland í heiminum á sjávarafurðum og stækki enn.

„Kína er mikilvægur markaður fyrir Íslendinga fyrir loðnu og loðnuhrogn og setur það óneitanlega strik í reikninginn að geta ekki sagt til með vissu hvort við eigum vona á útgefnum kvóta fyrir komandi vertíð. Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar standa vaktina næstu daga á sýningarsvæðinu og hlakka til að taka samtalið,“ segir á vsv.is.

Yfir fjörutíu þúsund sækja sýninguna

Eftirfarandi upplýsingar um sýninguna í Qingdao er settar fram á vef Vinnslustöðvarinnar:

  • 13 sýningarhallir í Hongdao International Convention and Expo Center í Qingdao.
  • 48.000 m2 sýningarsvæði.
  • 1.680 fyrirtæki frá 51 landi að kynna sýna starfsemi/vörur.
  • Yfir 40.000 manns sækja sýninguna frá yfir 120 löndum.
  • Sýningin er haldin dagana 30.10 – 01.11.