Forsvarsmenn frá CLIA (Cruise Lines International Association) heimsóttu síðastliðinn fimmtudag Grundarfjörð þar sem Björg Ágústsdóttir bæjarstóri, Hafsteinn Garðarsson hafnarstjóri, Margrét Björk Björnsdóttir forstöðumaður áfanga og markaðsstofu Vesturlands og Hlédís Sveinsdóttir framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsness tóku á móti þeim.

Sigurður Jökull Ólafsson, markaðsfulltrúi Faxaflóahafna, sem verið hefur formaður Cruise Iceland og tekur sinn við framkvæmdastjóri samtakanna segir CLIA menn hafa verið mjög ánægðir að sjá alla þá uppbyggingu sem höfnin og bæjarfélagið hafi staðið að fyrir gesti skemmtiferðaskipa. Í höfninni var hið glæsilega skip Emerald Princess með yfir þrjú þúsund farþega og bæjarbúar í óða önn við að þjónusta gesti úr skipinu.

Heimsækja fleiri bæi í þessari viku

„Mikið gleðiefni var að sjá að heimamenn sjá þau tækifæri sem felast í þessum ferðamönnum. Það komu reglulegar rútur og sóttu ferðamenn til að heimsækja hákarlasafnið í Bjarnarhöfn, aðrir fóru hringferð um nesið, sumir fóru í bæjarferð á kaffihús eða safn og aðrir fóru í margs konar ferðir á Snæfellsnesi,“ segir Sigurður Jökull.

Samkvæmt Hafsteini hafnarstjóra segir Sigurður Jökull starfa sex manns hjá höfninni yfir sumarið þegar mikið sé um að vera en á veturnar séu starfsmenn hafnarinnar þrír.

„Ný búið er að reisa glæsileg almenningssalerni og þjónustuhús niðri á höfn, til hagsbóta fyrir skipafarþega sem og alla aðra farþega sem heimsækja þennan fallega sjávarútvegsbæ,“ segir Sigurður Jökull. Í þessari viku muni Ísafjörður, Akureyri og Seyðisfjörður verða sótt heim af bæði Cruise Iceland, CLIA og forsvarsmönnum stærstu skipafélaga.