Grænlenska uppsjávarskipið Polar Amaroq hefur að undanförnu verið á Akureyri þar sem starfsmenn Slippstöðvarinnar hafa unnið að því að auka frystigetuna um borð. Því verki er nýlega lokið og hélt skipið til makrílveiða um helgina. Polar Amaroq er í eigu grænlenska fyrirtækisins Polar Pelagic og á Síldarvinnslan þriðjungshlut í því.

Á meðan unnið var í skipinu á Akureyri var efnt til öryggisnámskeiðs fyrir Grænlendingana í áhöfninni. Þörf þótti á að fara yfir allan öryggisbúnað skipsins sem Polar Pelagic festi kaup á í desember sl. Á námskeiðinu var farið yfir reykköfunarbúnað, notkun neyðarflotgalla, notkun Björgvinsbeltis, flutning á meðvitundarlausum manni og björgun úr lest svo nokkuð sé nefnt. Mikil ánægja var með námskeiðið að sögn Geirs Zoega skipstjóra enda skiptir öryggisvitund skipverja miklu máli.