Þær Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir hafa á þingi lagt fram frumvarp sem myndi heimila ráðherra að ráðstafa aflamagni í óslægðum botnfiski „til veiða með handfærum til 30. september 2020.“
Í greinargerð segir að heimild til strandveiða í september væri nauðsynleg „mótvægisaðgerð við efnahagslegum áföllum sem dunið hafa yfir landið í kjölfar kórónaveirufaraldurs.“
Landssamband smábátaeigenda (LS) hafði áður farið þess á leit við Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, að hann beiti sér fyrir lagabreytingu sem myndi opna fyrir strandveiðar í september.
Strandveiðitímabilið átti að standa út ágústmánuð en þær voru stöðvaðar þegar þriðjungur veiðidaga mánaðarins voru eftir vegna þess að veiðiheimildirnar voru uppurnar.
Í bréfi LS til ráðherra segir: „Samtöl við strandveiðisjómenn undanfarna daga gefa til kynna að þriðjungur þeirra muni ekki hefja aftur strandveiðar á þessu ári verði það leyft. Útfrá þeirri vitneskju kæmi framlenging sér afar vel fyrir 350 útgerðaraðila, sem flestir eru nú án atvinnu.“