„Það er rólegt. Við erum búnir að toga í fimmtán-tuttugu tíma fyrir kannski 250 tonn,“ segir Smári Einarsson, fyrsti stýrimaður á Hoffelli þegar rætt er við hann fyrir hádegi í gær, þriðjudag, þar sem skipið er við kolmunnaveiðar í færeysku lögsögunni.
Að sögn Smára hefur bræla sett strik í reikninginn og Hoffell hafi leitað vars við eyjarnar á laugardaginn. Veiðin hafi verið rysjótt og mjög lítil í björtu. „Það er bara í myrkri sem við erum að fá eitthvað.“
Það sama sé upp á teningnum hjá öðrum skipum sem fari fækkandi á svæðinu. „Við erum bara orðnir fjórir hérna eftir; Venus, Víkingur, Huginn og við. Sumir af þeim sem voru hér voru kallaðir í loðnuleit.“
Smári segir veiðunum verða haldið áfram þar til þeir ná að fylla. Mikið hafi verið af skipum á svæðinu í byrjun og veiðin verið blettótt.
„Þetta er eins og oft vill vera þegar fer að líða á janúar í færeysku lögsögunni. Sum árin er þetta bara í janúar en stundum endist þetta fram í febrúar. Í fyrra vorum við hér fram í miðjan febrúar á veiðum. Kolmunninn fer suður eftir og kemur svo aftur inn í færeysku lögsöguna í apríl,“ segir Smári.
Leita í nokkra daga
Varðandi loðnuna segir Smári áhöfnina á Hoffelli ekki hafa orðið vör við loðnu á siglingunni á miðin. „Það var leiðinda veður á okkur þegar við fórum út. En það hafa einhverjir séð eitthvað á landleiðinni og menn tekið einhverja leggi,“ segir hann.
Aðalsteinn Jónsson SU og Polar Ammassak héldu út til loðnuleitar fyrir austan land á mánudagskvöld. Þegar rætt er við Jóhann Kristjánsson, stýrimann á Aðalsteini Jónssyni, fyrir hádegi í gær er skipið við leit í Hvalbakshallinum. „Áætlunin er að leita þetta alveg norður undir Glettinganes,“ segir Jóhann. Leitin muni vara í nokkra daga.
„Það hefur ekkert gerst enn þá en við erum enn svolítið sunnarlega í ferlinu. Það verður alltaf að halda í vonina, það er alveg frumskilyrði,“ segir Jóhann Kristjánsson.
Aftur leitað í byrjun febrúar
Í gær hafði RÚV eftir Guðmundi Óskarssyni, sviðsstjóra uppsjávarsviðs Hafrannsóknastofnunar, að hann byggist ekki við að leitin sem nú stendur yfir fyrir austan muni breyta nokkru um þá niðurstöðu stofnunarinnar að ekki sé næg loðna til að veita ráðgjöf um útgáfu kvóta. Hins vegar sé stefnan sett á nýjar mælingar undan Norðvesturlandi í byrjun febrúar til að kanna hvort það sé að koma eitthvað nýtt upp að landinu þar. „Eins og við þekkjum með þessar vesturgöngur, þær eru að koma seinna og birtast þá á þeim slóðum. Það er svona það sem liggur fyrir næst,“ sagði Guðmundur við RÚV.