Friðrik Mar Guðmundsson hefur verið ráðinn kaupfélagsstjóri Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga og framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar hf. frá 1. september 2013.
Hann tekur við af Gísla Jónatanssyni sem lætur af störfum í lok sumars eftir 38 ára starfsferil sem framkvæmdastjóri félaganna.
Friðrik Mar hefur unnið við ýmis stjórnunarstörf í gegnum árin og er nú framkvæmdastjóri Mjólku ehf og Vogabæjar ehf. Þar áður var Friðrik Mar framkvæmdastjóri Matfugls ehf., Tanga h/f á Vopnafirði og kaupfélagsstjóri Kaupfélags Stöðfirðinga. Þá hefur hann setið í stjórnum ýmissa fyrirtækja m.a. sem stjórnarformaður Loðnuvinnslunnar hf. frá árinu 2004.