Rækjuveiði úti fyrir Norðurlandi hefur verið  frekar treg að undanförnu og þessa vikuna var aðeins landað 52 tonnum af rækju til vinnslu á Siglufirði.

Þrátt fyrir dræma veiði er þó full vinnsla í rækjuverksmiðjunni á meðan unnin er iðnaðarrækja sem keypt var frá Kanada nýlega, að því er fram kemur á vef Ramma hf. á Siglufirði.