Umtalsvert eldi á hrognkelsaseiðum fyrir færeyska kaupendur stendur nú yfir í tilraunaeldisstöð Hafrannsóknastofnunarinnar á Stað við Grindavík. Áætlað er að fyrstu seiðin verði send til Færeyja í haust. Hlutverk þeirra er að éta lús af laxi í eldiskvíum.

Seiðin verða orðin 7-8 grömm þau þau fara til Færeyja sem líklega verður í október. Ekki þarf nema eitt hrognkelsaseiði á hverja tíu laxa til að halda lúsinni niðri. Laxalús er mikið vandamál í Noregi og vaxandi vandamál í Færeyjum.

Norðmenn hafa framleitt mikið magn af hrognkelsum fyrir fiskeldisfyrirtæki þar í landi en Færeyingar geta ekki flutt þau inn frá Noregi vegna sjúkdómahættu. Á Íslandi hafa hins vegar engir alvarlegir laxasjúkdómar komið upp.

Fimm manns vinna við rannsóknir og seiðaframleiðslu hjá tilraunastöðinni í Grindavík. Hrognkelsaframleiðslan er stærsta verkefni stöðvarinnar núna og skapar Hafrannsóknastofnun talsverðar tekjur.

Sjá nánar í Sjávarútvegssýningarblaði Fiskifrétta.