Baldur Einarsson hefur verið ráðinn í starf útgerðarstjóra Loðnuvinnslunnar. Baldur mun hefja störf fljótlega og vinna fyrst um sinn samhliða Kjartani Reynissyni fráfarandi útgerðarstjóra. Kjartan hefur óskað eftir því að láta af störfum í vor, að því er segir í frétt á heimasíðu Loðnuvinnslunnar.
Baldur er sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri og hefur víðtæka reynslu úr sjávarútvegi til sjós og lands. Baldur hefur meðal annars starfað sem útgerðarstjóri Eskju á Eskifirði síðastliðin 7 ár en lét af störfum þar á síðasta ári.
Baldur mun hefja störf fljótlega og vinna fyrst um sinn samhliða Kjartani Reynissyni fráfarandi útgerðarstjóra. Kjartan hefur óskað eftir því að láta af störfum í vor eftir einstaklega farsælan starfsferil fyrir Kaupfélag Fáskrúðsfirðinga, Loðnuvinnsluna og forvera hennar.
Samhliða þessum breytingum mun Steinþór Pétursson taka við hlutverki Kjartans sem fulltrúi Kaupfélagsstjóra og aðstoðarmaður framkvæmdastjóra Loðnuvinnslunnar. Steinþór mun áfram sinna skrifstofustjórn félagsins en starfsheiti hans verður breytt í fjármálastjóra.