Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson átti síðdegis í föstudag fund með Ban Ki-moon framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í í New York.
Í tilkynningu frá skrifstofu forseta segir að á a fundinum hafi komið fram eindreginn stuðningur Ban Ki-moon við alþjóðlegt samstarfsverkefni um þurrkun matvæla sem byggt yrði á reynslu Íslendinga af þurrkun sjávarafurða.
Í tilkynningunni segir að samtvinnun hreinnar orku og eflingar fæðuöryggis í veröldinni er eitt af meginviðfangsefnum Sameinuðu þjóðanna á nýrri öld. Íslendingar hafa í áratugi þurrkað þorskhausa, beinagarða og annað sjávarfang, sem áður var hent, og flutt út til Afríku þar sem þær afurðir nýtast almenningi.
Að undanförnu hefur fyrirtækið Haustak á Reykjanesi einnig þurrkað kjöt, ávexti og grænmeti í tilraunaskyni og sýnir sú reynsla að þurrkunaraðferðum Íslendinga má beita á margvíslegar afurðir.
Í heimsókn Ban Ki-moon til Íslands í sumar kynnti forseti framkvæmdastjóranum hugmyndir um alþjóðlegt samvinnuátak á þessu sviði og voru fundirnir í New York framhald af þeim viðræðum.