Fóðurblandan á Íslandi og einn stærsti framleiðandi fiskifóðurs í heimi, danska fyrirtækið Biomar, hafa náð samkomulagi um náið samstarf um framleiðslu á hágæða fiskifóðri fyrir íslensk fiskeldisfyrirtæki. Samstarfið verður með þeim hætti að Fóðurblandan framleiðir fiskifóður eftir uppskrift og stöðlum Biomar í verksmiðju sinni við Korngarða.

Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar, segir að Biomar komi inn með sína tækni og þekkingu og aðstoði Fóðurblönduna við framleiðsluna eftir sínum uppskriftum. Það verður eina hlutverk Fóðurblöndunnar í samstarfinu en Biomar mun halda utan um sölu- og markaðsmál.

Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar.
Úlfur Blandon, framkvæmdastjóri Fóðurblöndunnar.

Fóðurblandan hefur framleitt fiskifóður, fyrst og fremst fyrir landeldi. „Fóðrið okkar er mjög gott en við höfum ekki verið jafn framarlega í tækni og Biomar. Sem dæmi má nefna að hjá Biomar eru 38 manns eingöngu við rannsóknir og þróun. En við þekkjum alla innviði á Íslandi og erum með tengingar inn í þessi fyrirtæki ásamt frábæru dreifikerfi með okkar bílum. Það sem Biomar kemur með inn í samstarfið er þekking á framleiðslu á fóðrinu,“ segir Úlfur.

Fyrirtæki í fiskeldi leggja mikla áherslu á að lækka kolefnisspor sitt. Bróðurparturinn af öllu fóðri sem notað er í greininni er innflutt eða um 70 þúsund tonn á ári, aðallega frá norska framleiðandanum Skretting. Með fyrirhugaðri innlendri framleiðslu mun skapast tækifæri fyrir íslensk fiskeldisfyrirtæki að lækka verulega kolefnisspor sitt og um leið hafa þau aðgengi að staðbundinni framleiðslu með mun skemmri afhendingartíma en hingað til hefur tíðkast. Mikið laust rými er í verksmiðju Fóðurblöndunnar í Korngörðum. Úlfur segir að í raun sé allt tilbúið fyrir framleiðslu á fiskifóðri fyrir Biomar.

Farið verður í fjárfestingar ef þurfa þykir til að bæta þá tækni sem fyrir er í verksmiðjunni og þar með gæði framleiðsluvörunnar. Fóðurblandan framleiðir nú á milli 3-5 þúsund tonn á ári af fiskafóðri. Afkastageta verksmiðjunnar er hins vegar um 20-30 þúsund tonn. Með samstarfinu við Biomar er stefnt að fullum 30 þúsund tonna afköstum á fiskifóðri innan ákveðins tíma. Það sem styrkir samstarfið enn frekar er aðgengi að innlendu hráefni til framleiðslunnar sem að miklum hluta er fiskimjöl.