„Við erum eiginlega bara að flýja þessa haustlægð,“ sagði Sigurður Daníel Halldórsson, afleysingaskipstjóri á Áskeli ÞH sem var á Flákanum úti af Breiðafirði fyrir hádegi í gær.
Eins og fleiri varð áhöfnin á Áskeli fyrir barðinu á norðan áhlaupinu sem gekk yfir landið í byrjun vikunnar.
„Við erum að reyna að vera í dálitlu skjóli hér á Flákanum að toga en hefðum viljað vera norður í Kanti,“ sagði Sigurður en þangað hafði förinni verið heitið eftir sjómannadaginn. Í staðinn voru þeir í ýsu á Flákanum. „Við erum bara á öðru hali hérna, það er mjög rólegt hjá okkur og lítið um að vera, það er komið eitt ljós eftir fjóra tíma. Það er bara frekar dapurt,“ sagði hann um aflabrögðin.
Farið að dofna
„Við komumst sem sagt ekkert út af brælunni en bíðum eftir að lægi og förum þá eitthvað utar að reyna við þorsk,“ sagði Sigurður. Flestir séu af bíða af sér bræluna. „En svo fóru margir austur. Þeir geta verið með landinu og svo fara þeir eitthvað austar þegar lægir.“
Að sögn Sigurðar má gera ráð fyrir að á fimmtudagskvöld verði komið ágætis veður. „Þá förum við eitthvað utar að reyna fyrir okkur,“ sagði hann og kvaðst reikna með að verða í landi á sunnudag eða mánudag.
„Ég ætlaði að reyna að landa á fimmtudaginn en ég veit ekki hvort það verður séns ef það er svona rólegt,“ sagði Sigurður.
Fáum fínasta sumarfrí
Oftast landar Áskell í Hafnarfirði en Sigurður gerði ráð fyrir að landa þeim afla sem mögulega næðist á Flákanum í Grundarfirði áður en haldið yrði út á ný. „Þá byrja ég bara nýjan túr úti í Kanti.“
Vertíðina í heild sagði Sigurður hafa verið góða. „Það var mjög fínt í vetur, fínasta blanda og fín veiði. En svo eðlilega fer þetta að dofna núna og þá verðum við að sækja þetta utar,“ sagði hann.
Fram undan sagði Sigurður vera að halda áfram veiðum til 21. júní. „Þá stoppum við fram yfir verslunarmannahelgi svo við fáum fínasta sumarfrí.“