Eyjaskipin Vestmannaey VE og Bergur VE héldu til veiða sl. miðvikudag og komu bæði til hafnar með fullfermi á föstudag. Afli skipanna var mest þorskur og síðan nokkuð af ýsu.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir á heimasíðu Síldarvinnslunnar að það hafi verið mokveiði.

„Við vorum á Ingólfshöfða og tókum síðan eins sköfu á Víkinni. Þarna fékkst fallegur vertíðarfiskur, 7 kg og stærri. Það er slæm ölduspá framundan og því er ekki ákveðið hvenær farið verður út á ný,” segir Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergi, segir að þeir hafi veitt á Ingólfshöfða og síðan klárað á Víkinni. „Þetta var hörkutúr, alveg þrælfínn. Og fiskurinn sem fékkst var súper vertíðarfiskur, fullur af lifur og gotu. Veðrið í heimsiglingunni var ekki sérstaklega skemmtilegt en það er ekkert nýtt,” segir Jón.