Frystitogarinn Arnar HU 1 kom til hafnar á Sauðárkróki á dögunum. Aflinn um borð samsvarar um 484 tonnum upp úr sjó, þar af um 274 tonnum af djúpkarfa og 94 tonnum af gullkarfa. Aflaverðmæti er um 112 milljónir.
Heimasíða FISK Seafood
hafði samband við Guðmund Henry Stefánsson skipstjóra og spurði hann um túrinn.
„Við fórum frá Reykjavík að kvöldi 22. mars eftir millilöndun. Við
höfum verið á veiðum á suðvestur miðum. Veiðarnar hafa gengið ágætlega en eins og hjá flestum þarf að forðast ýsu og gullkarfa, þar sem kvótinn á þeim tegundum virðist ekki vera í neinu samræmi við það sem er að gerast á miðunum. Það verður landað rúmum 17.000 kössum. Við fórum einu sinni í var við Reykjanes vegna veðurs en annars hefur veðrið verið þokkalegt,“ sagði Guðmundur.
Þá landaði Málmey SK1 einnig á Sauðárkróki fyrr í vikunni. Heildarmagn afla um borð var um 148 tonn og uppistaða aflans var þorskur. Heimasíðan hafði samband við Þórarinn Hlöðversson skipstjóra og spurði frétta.
„Við vorum fimm og hálfan sólarhring á veiðum og vorum á Þverálshorni, Þverál og Kögurgrunni. Veiðarnar voru þokkalegar á daginn, en sáralitlar á nóttunni. Það var mikið um ís á svæðinu, við hröktumst undan honum fram og til baka eftir vindátt og straum. Veðrið var ágætt á köflum,“ sagði Þórarinn.