Bátar með virk strandveiðileyfi nú fyrsta dag strandveiða, 4.maí, eru 331 talsins.
Þetta kemur fram á vef Fiskistofu.
Bátarnir eru 136 á A-svæði, 41 á B-svæði, 46 á C-svæði og 108 á D-svæði.
Alls höfðu borist 390 umsóknir í morgun.
Í upphafi strandveiða 2019 voru 249 bátar og enduðu þeir í 620 í lok sumars. Í ár eru því 33% fleiri bátar að hefja strandveiðar en í fyrra.