Rétt um klukkan eitt í dag var áhöfnin á björgunarskipinu Hafbjörg í Neskaupstað kölluð út vegna fiskibáts í vandræðum um 17 sjómílur norðaustur af Neskaupstað.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

„Gír bátsins hafði bilað með þeim afleiðingum að það gat ekki siglt fyrir eigin vélarafli.

Nú rétt upp úr 15:30 var komin taug á milli skipanna og er nú stefnan tekin inn á Neskaupstað.

Fjórir eru um borð í fiskibátnum og engin hætta er á ferðum,“ segir í tilkynningunni.