Aðsókn í sjávarútvegstengt nám hefur vaxið hröðum skrefum frá árinu 2009, samkvæmt greiningu Sjávarklasans. Fjöldi innritana jókst í heildina haustið 2013 frá árinu áður, en innritanir eru þó á undanhaldi á sumum sviðum. Þá hefur fjölbreytni námsins aukist verulega.
Merkja má aukinn áhuga á nýsköpun og fullvinnslu afurða á sókn ungs fólks í grunnnám tengt sjávarútvegi og auknum áhuga á námi í matvælafræði og þverfaglegt nám á sviði sjávarútvegs.
Þá hefur fjöldi nemenda við skipstjórnarskólann nærri þrefaldaðist á árunum 2008 og 2013 og enn aukast nýskráningar.
Eftirtektarverður viðsnúningur hefur orðið í aðsókn í sjávarútvegsfræði við Háskólann á Akureyri en námið hefur verið eflt, m.a. með aukinni tengingu við atvinnulífið. Heildarfjöldi nemenda þar hefur aldrei verið meiri en nú leggja 69 nemendur stund á sjávarútvegsfræði.
Sjá nánar á vef Sjávarklasans.