Jólablað Fiskifrétta er komið út, stærra og efnismeira en nokkru sinni fyrr. Meðal efnis í blaðinu er eftirfarandi:
,,Sex ára í Grænlandstúr” – viðtal við Kristján Vilhelmsson um sjómennskuna og Samherja.
,,Árekstur ólíkra menningarheima” – rætt við Bjartmar Pétursson um störf í sjávarútvegi í Austur-Evrópu.
,,Sannar grobbsögur” – Björgvin Gunnarsson fyrrv. skipstjóri segir frá ævintýralegu fiskirí á árum áður.
,,Eitt sviplegasta sjóslys í sögu Noregs” – 78 norskir selveiðimenn fórust í ofsaveðri norðan Íslands árið 1952.
,,Síldin kraumar á sundunum” – Fiskifréttir í veiðiferð með Hákoni EA á síldarmiðunum í Breiðafirði.
,,Braskið varð til þess að kvótakerfið missti trúverðugleikann” – rætt við Steingrímur Þorvaldsson fyrrv. skipstjóra á Vigra RE um sjómennskuferilinn.
,,Mesta sjóslys Íslandssögunnar” – Kafli úr bókinni Dauðinn í Dumbshafi þegar 250 manns fórust í skipalest norður af Vestfjörðum á stríðsárunum.
,,Tilurð kvótakerfis á Nýja-Sjálandi”
Og margt fleira.
Jólablað Fiskifrétta er 80 bls. að stærð.